Fréttastofa RÚV
Íslensk stjórnvöld ætla í samvinnu við samtök og stofnanir á vettvangi útflutnings að vakta hvernig heitið Ísland eða Iceland er notað erlendis. Meðal annars á að koma í veg fyrir að álíka staða komi upp í framtíðinni líkt og varð þegar breska verslunarkeðjan Iceland skráði heitið sem vörumerki og reyndi að ráða því hvernig það yrði notað. Utanríkisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Hugverkastofnun, Icelandic Trademark Holding og Íslandsstofa hafa undirritað samkomulag um að sinna hagsmunagæslu vegna notkunar á landaheitinu Ísland eða Iceland upp á enska tungu. Einn þáttur samstarfsins er að vinna gegn því á alþjóðavísu að landaheiti verði einkavædd í vörumerkjarétti. Vakta á notkun nafnsins erlendis og bregðast við ef sú notkun þykir ganga gegn íslenskum hagsmunum. Ef ástæða þykir til verða fyrirtækjum send erindi þar sem óskað er skýringa á tengingu þeirra við íslenskan uppruna. Einnig verður gripið til aðgerða ef þurfa þykir, svo sem að stöðva mál á fyrstu stigum þegar fyrirtæki nota eða reyna að skrá Ísland/Iceland sem vörumerki.
Go to News Site