Collector
Drógu rafbyssur 30 sinnum úr slíðrum | Collector
Drógu rafbyssur 30 sinnum úr slíðrum
Fréttastofa RÚV

Drógu rafbyssur 30 sinnum úr slíðrum

Lögreglumenn drógu rafbyssur úr slíðri 30 sinnum á fyrsta ársfjórðungi og beittu þeim fimm sinnum. Frá þessu segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. Aldrei hefur rafbyssum verið beitt eins oft á einum ársfjórðungi, en lögregla segir erfitt að meta hvort tilfellum fari almennt fjölgandi. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra var rafbyssum til dæmis beitt fjórum sinnum, en aldrei á síðasta ársfjórðungi 2025.

Go to News Site