Collector
Íslendingar erlendis geta horft á HM í RÚV appinu | Collector
Íslendingar erlendis geta horft á HM í RÚV appinu
Fréttastofa RÚV

Íslendingar erlendis geta horft á HM í RÚV appinu

Íslendingar erlendis munu geta horft á HM í fótbolta og aðra réttindavarða dagskrá RÚV, eins og barnaefni, í RÚV appinu á nýjustu snjallsjónvörpum og í Apple TV. Nýjasta uppfærsla RÚV appsins gerir þetta kleift. Þjónustan er enn ekki orðin virk í RÚV appinu fyrir farsíma, en það verður aðgengilegt fyrr en síðar. Mikilvægt er fyrir notendur að uppfæra RÚV appið í sjónvörpunum sínum til að fá nýjstu útgáfuna. Í kjölfarið ættu þau sem reyna að horfa á réttindavarið efni RÚV í appinu í sjónvörpum sínum erlendis að fá upp eftirfarandi. Þá þarf að velja innskrá til að komast áfram í ferlinu. Þá birtist QR kóði sem þarf að skanna með farsíma. Þegar QR kóðinn hefur verið skannaður þarf að auðkenna sig í símanum með rafrænum skilríkjum. Þegar notandinn hefur auðkennt sig með rafrænum skilríkjum opnast fyrir réttindavarið efni. Íslendingar erlendis munu því geta horft á HM í fótbolta í sumar, og aðra réttindavarða dagskrá hjá RÚV í framtíðinni í appinu hvar sem er í heiminum. Eins og áður segir stendur vinna yfir fyrir uppfærslu á símaöppunum, og því er þessi uppfærsla ekki komin í þau ennþá. En notendur Apple TV og Android TV geta notað þennan möguleika.

Go to News Site