Collector
Aldurstakmark á rafhlaupahjól „sett af ástæðu“ en ekki virt að fullu | Collector
Aldurstakmark á rafhlaupahjól „sett af ástæðu“ en ekki virt að fullu
Fréttastofa RÚV

Aldurstakmark á rafhlaupahjól „sett af ástæðu“ en ekki virt að fullu

Lögreglan biður foreldra um að kynna sér vel reglur um rafmagnshlaupahjól. Þau eru algengur ferðamáti barna; jafnvel þeirra sem ekki hafa náð tilskildum aldri. Hjálmanotkun á rafhlaupahjólum í einkaeigu er 51%, samkvæmt könnun Samgöngustofu, en aðeins um 6% á þeim sem eru merkt leiguhjól. Rúmlega 700 slys hafa orðið á rafmagnshlaupahjólum frá því að vinsældir þeirra fóru að aukast hér á landi á fyrstu árum heimsfaraldursins, samkvæmt gögnum Samgöngustofu. Hins vegar eru þau talin vera mun fleiri því líklegt þykir að fólk leiti ekki endilega til lögreglu jafnvel þó að það slasist. 30 slösuðust alvarlega Frá og með 2021 hafa slys á rafmagnshlaupahjólum verið töluvert algengari en slys á reiðhjóli og margfalt fleiri en slys á rafmagnsvespu. Þau voru 127 í fyrra. Þrjátíu slösuðust alvarlega á rafmagnshlaupahjóli í fyrra og 97 lítillega. Þeim sem slösuðust í umferðinni á reið- og rafhjólum almennt hefur einnig fjölgað samhliða – úr rúmlega hundrað árið 2019 í milli 235 í fyrra. Fólk á aldrinum 23 til 32 ára slasaðist oftast og börn og yngra fólk slasaðist 26 sinnum. Þar af voru sjö börn undir 13 ára aldri – sem mega ekki vera á rafmagnshlaupahjólum. Þrjú þeirra slösuðust alvarlega. „Við erum að sjá vaxandi tíðni þess, með hækkandi sól, að börn og unglingar sjáist á þessu,“ segir Hilmar Sigurjónsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi. „Börn yngri en 13 ára, sem eiga ekki að vera á þessu, eru sannarlega að nota þessi hjól og unglingar eru jafnvel tveir til þrír á þessum hjólum – sem er alls ekki gott því þau geta illa brugðist við ef eitthvað kemur upp á.“ „Þetta eru ökutæki“ Flestir slösuðust á höfuðborgarsvæðinu, eða alls 110 í fyrra. Logi Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að slys verði í hverri viku allt frá skrámum í beinbrot og höfuðhögg. Hann segir mikilvægt að foreldrar kynni sér reglurnar og virði aldurstakmörk. „Þau eru sett af ástæðu. Þetta eru ökutæki þó að þau séu bara til notkunar á gangstéttum og göngustígum,“ segir Logi. „Fólk verður bara að átta sig á því og virða þær reglur sem gilda um þetta.“

Go to News Site