Fréttastofa RÚV
Rafmagnslaust verður á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði í tvær klukkustundir aðfaranótt fimmtudags. Starfsmenn Landsnets ráðast þá í viðhald á tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rariks í Vatnshömrum. Vinnan hefst klukkan tíu mínútur yfir tólf á miðnætti og er gert ráð fyrir að hún standi yfir í tvær klukkustundir. Í tilkynningu Rariks um viðgerðina eru viðskiptavinir beðnir um að gera viðeigandi ráðstafanir vegna yfirvofandi rafmagnsleysis um leið og þeir eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem það kann að valda. Rafmagnslaust verður í um tvær klukkustundir upp úr miðnætti aðfaranótt fimmtudags.Rarik
Go to News Site