Collector
Eldur í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi | Collector
Eldur í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi
Fréttastofa RÚV

Eldur í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi

Eldur kviknaði í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi fyrir skemmstu. Gunnar Dofri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sorpu segir eldinn utandyra og engum hleypt inn á svæðið nema slökkviliði. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er við slökkvistörf á vettvangi. Borgar Valgeirsson verkefnastjóri segir tvo bíla hafa verið senda á Álfsnes en veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. Fréttin verður uppfærð eftir því sem fleiri upplýsingar berast.

Go to News Site