Collector
Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur | Collector
Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur
Fréttastofa RÚV

Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur

Svo mjótt var á munum í forsetakosningum í Perú í gær að yfirvöld hafa ekkert getað sagt um það enn hvor það var sem hafði betur, Keiko Fujimori eða Robert Sanchez. Þegar 92 prósent atkvæða höfðu verið talin var staðan þannig að Fujimori var með 50,2 prósent og Sanchez 49,8. Búist er við að Sanchez eigi eftir að saxa á forskotið því það á eftir að telja hluta atkvæða af landsbyggðinni, þar sem hann er talinn njóta meiri stuðnings. Niðurstöðurnar þykja til marks um klofning meðal þjóðarinnar. Fujimori er á hægri ás stjórnmálanna og Sanchez á þeim vinstri. Hún er dóttir Albertos Fujimori sem var forseti landsins frá 1990 til 2000 og var síðar dæmdur í fangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni vegna aðgerða gegn skæruliðahreyfingum. Sú þróun hefur sést í nágrannaríkjunum Bólivíu, Chile og Ekvador að fylgi hægrimanna, sem hafa lofað að taka á glæpamönnum af hörku, hefur aukist. Talið er að ekki verði ljóst fyrr en eftir nokkra daga hvort þeirra hafði betur. Skera þarf úr um öll atkvæði sem vafi leikur á um, áður en yfirvöld tilkynna um sigurvegara. Það voru gerðar útgönguspár og tölur birtar úr hluta talningar en þar var of mjótt á munum til að nokkuð væri hægt að segja til um það hver verði næsti forseti.

Go to News Site