Fréttastofa RÚV
Varptíminn við Tjörnina er í hámarki þessa dagana og fyrstu ungarnir að koma úr eggjunum. Því er mikilvægt að hætta brauðgjöf við Tjörnina. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Brauðið laðar að máva sem einnig eiga það til að éta litla unga. Endur hafa þess að auki nóga fæðu á Tjörninni yfir sumartímann fyrir sig og unga sína og því er ekki þörf á að fóðra þær. Brauðgjöf getur valdið ofauðgun í vatni og vatnið getur orðið mjög gruggugt og eituráhrifa gætt í verstu tilfellum. Það er í lagi að fóðra endurnar með haustinu en mælst til þess að fólk forðist að gefa brauð og gefi korn, fræ, salatblöð eða elduð hrísgrjón í staðinn. Björn Ingvarsson
Go to News Site