Collector
Fyrirspurnir, innviðafélag og samgönguáætlun | Collector
Fyrirspurnir, innviðafélag og samgönguáætlun
Fréttastofa RÚV

Fyrirspurnir, innviðafélag og samgönguáætlun

Þingfundur hefst á Alþingi klukkan 10:30. Óundirbúinn fyrirspurnatími er fyrstur á dagskrá og verða fjórir ráðherrar til svara. Það eru utanríkisráðherra, atvinnuvegaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Þrjú stór mál verða til umræðu í dag. Tólf þingmenn eru á mælendaskrá vegna frumvarps um innviðafélag og jafn margir bíða þess að komast í ræðustól vegna samgönguáætlunar og aðgerðaáætlunar sem henni tengist. Fjármálaáætlun er einnig á dagskrá, seinni umræða um hana er ekki hafin. Alþingi við Austurvöll.RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site