Fréttastofa RÚV
Svissneski hlauparinn Audrey Werro setti mótsmet á Demantamóti í Stokkhólmi í gærkvöld þegar hún hljóp á reint ótrúlegum tíma, 1:53,98 mín. Hún varð um leið aðeins þriðja kona sögunnar til að hlaupa á undir 1:54. Aðeins Jarmila Kratochvilova frá Tékkóslóvakíu (1:53,28 mín) sem hefur átt heimsmetið frá árinu 1983 og Nadezhda Olizarenko frá Sovétríkjunum (1:53,43 mín) eiga betri tíma í 800 metra hlaupi kvenna frá upphafi. Tími Werro í gær er því jafnramt sá besti á þessari öld. Werro skákaði Bretanum Keely Hodkinson í hlaupinu á Demantamótinu í gærkvöld, en Hodkinson hefur að undanförnu verið afar öflug og er til að mynda Ólympíumeistari, tvöfaldur Evrópumeistari og heimsmeistari innanhúss í greininni. Skákaði Hodgkinson Hodkinson varð önnur á eftir Werro í hlaupinu í gær á 1:54,33 mín, og raðar sér í sjötta sæti yfir hröðustu 800 metra hlaupa sögunnar. Hodkinson setti breskt met í gær. Werro er einungis 22 ára og er greinilega í hörku formi. Búast má við spennandi einvígi milli Werro og Hodkinson á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham í ágúst. RÚV mun sýna beint frá öllum keppnishlutum EM. Miðað við hlaupið í Stokkhólmi í gær, gæti 43 ára heimsmet í greininni verið í hættu á EM, ef ekki fyrr.
Go to News Site