Fréttastofa RÚV
Landsmenn mega víðast hvar gera ráð fyrir einhverri vætu í dag. Þó gæti undantekningin verið á Norðausturlandi þar sem verður bjart með köflum. Norðan og austan til er útlit fyrir stinningsgolu og kalda en hægari vindur verður vestan til. Veðurspáin er svohljóðandi: Suðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu, en hægari breytileg átt vestantil. Rigning eða skúrir og hiti 8 til 12 stig, en bjartviðri norðaustanlands með hita að 16 stigum. Austlæg átt 5-13 og rigning eða skúrir á morgun, en léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 10 til 15 stig.
Go to News Site