Loka verslun Next á Íslandi
Fréttastofa RÚV

Loka verslun Next á Íslandi

Verslun Next í Kringlunni verður lokað í næstu viku. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Next á Íslandi. Þar segir að allar vörur eru á 50 prósenta afslætti en ekki er hægt skila þeim. Next er í stóru verslunarrými á 2. hæð í Kringlunni, við hliðina á H&M. Next á Íslandi lokar 4. apríl.Skjáskot / Facebook Next hefur verið starfrækt á Íslandi um árabil. Stofnendur eru Sverrir Berg Steinarsson og Ragnheiður Anna Jónsdóttir. Verslunin lokar laugardaginn 4. apríl.

Go to News Site