123 stjórnarandstæðingum sleppt úr fangelsi í Belarús

123 stjórnarandstæðingum sleppt úr fangelsi í Belarús

123 stjórnarandstæðingum hefur verið sleppt úr fangelsi í Belarús í kjölfar samkomulags milli stjórnvalda í Minsk við Bandaríkin, sem hétu því á móti að aflétta tilteknum viðskiptaþvingunum gegn ríkinu. John Coale, erindreki Bandaríkjanna, sagði samkomulagið stuðla að bættu sambandi ríkjanna, sem myndi leiða til frekari afléttingar refsiaðgerða. Meðal fólksins sem var sleppt er friðarverðlaunahafinn Ales Bialiatski, sem var handtekinn 2021, og aðgerðasinninn Maria Kolesnikova, sem var handtekin 2020 og hefur að miklu leyti verið vistuð í einangrun. Bialiatski hlaut friðarverðlaun Nóbels, ári eftir að hann var handtekinn, fyrir að skrásetja mannréttindabrot í Belarús. Hann var dæmdur til tíu ára fangelsisvistar. Kolesnikova var mjög áberandi í mótmælum gegn niðurstöðum umdeildra forsetakosninga í Belarús 2020. Þá lýsti Alexander Lukashenko forseti yfir sigri þrátt fyrir alþjóðlega gagnrýni á framkvæmd kosninganna. Systir Kolesnikova sagði hana vera þakkláta Bandaríkjaforseta og samningamönnum í Belarús.

Almannahagsmunir að leggja línurnar varðandi sæðisgjöf

Almannahagsmunir að leggja línurnar varðandi sæðisgjöf

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og læknir, telur mál danska sæðisgjafans 7069, einnig þekktum sem „Kjeld“, vera áfall fyrir sæðisgjafakerfið allt. „Ég held að þetta sé áfall fyrir þessa starfsemi almennt og það þurfi að vinna inn traust með því að leggja einhverjar skynsamlegar, en líka praktískar línur varðandi hvernig er að þessu staðið.“ Fleiri en 200 börn í Evrópu hafa verið getin með sæði hans, þar á meðal fjögur íslensk börn. Árið 2023 kom á daginn að Kjeld er með sjaldgæfa genastökkbreytingu, en hann hafði gefið sæði til bankans árið 2005 án nokkurrar vitneskju um genagallann. RÚV hefur í samstarfi við rannsóknarblaðamenn Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) í 14 löndum rakið útbreiðslu sæðisins. Heilbrigðisráðherra og flokkssystir Dags undirbýr nú frumvarp fyrir næsta þingvetur sem takmarkar hve mörg börn einn kynfrumugjafi má geta. Spurning um tæknina Í Vikulokunum í dag sagðist Dagur telja að breytingar á kerfinu væru í vændum. Málið muni mögulega leiða til þess að lönd komi upp skýrari reglum um sæðisgjöf og hvernig eigi að kanna hvern og einn sæðisgjafa fyrir fram, þó að fyrir liggi að maðurinn hafi gefið sæðið í góðri trú og greinst með genagallann fyrir tveimur árum. „Það er bara spurning um tæknina, hvort það sé raunhæft að einhvern veginn kanna hvern sæðisgjafa fyrir fram,“ segir Dagur. „Þetta er rosalega mikilvæg starfsemi og auðvitað mikilvægt að gefa fólki sem af einhverjum ástæðum hefur ekki tekist að eignast börn kost á því. Ég held að þetta séu bara almannahagsmunir að finna út úr þessu fljótt og vel þannig að það sé traust á þessu og kannski leiðir þetta að einhverju leyti í auknum mæli til þess að fólk vill vita meira um hvaðan sæði kemur og hvort að þjóðir taki upp einhvers konar eigin sæðisbanka eða eitthvað.“ Þingmaður Samfylkingarinnar segir mál sæðisgjafa númer 7069 vera áfall fyrir kerfið allt. Það séu almannahagsmunir að hans mati að leggja línurnar um hvernig sé staðið að sæðisgjöf.

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“

Kolbrún Bergþórsdóttir, landsþekktur blaðamaður Morgunblaðsins, hefur samúð með Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, fyrir að hafa misst þolinmæðina og tautað fúkyrði í garð stjórnarandstöðunnar fyrir munni sér. Orðrétt sagði Þórunn, sem frægt varð: „Ég er komin með nóg. Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk.“ Kolbrún hefur skilning á þessu framferði í ljósi þess hvað stjórnarandstaðan sé leiðinleg. Hún Lesa meira

Kona og fjögurra ára barn brennd inni

Kona og fjögurra ára barn brennd inni

Írska lögreglan, Gardaí Síochána, framkvæmdi í gær húsleit á þremur heimilum í Offaly-sýslu á Norður-Írlandi í leit að brennuvörgum sem brenndu sextuga konu og fjögurra ára gamlan frænda hennar inni á laugardaginn var þar í sýslunni.

Kona og fjögurra ára barn brennd inni

Kona og fjögurra ára barn brennd inni

Írska lögreglan, Gardaí Síochána, framkvæmdi í gær húsleit á þremur heimilum í Offaly-sýslu á Norður-Írlandi í leit að brennuvörgum sem brenndu sextuga konu og fjögurra ára gamlan frænda hennar inni á laugardaginn var þar í sýslunni.

Þing­menn bannaðir á krám vegna skatta­hækkana

Þing­menn bannaðir á krám vegna skatta­hækkana

Þingmönnum verkamannaflokksins í Bretlandi hefur verið meinaður aðgangur að fjölmörgum krám og veitingahúsum þar í landi, en veitingamenn eru ævareiðir yfir fyrirhuguðum skattahækkunum á greinina. Sjónvarpsmaðurinn Jeremy Clarkson bættist í dag við hóp þeirra sem hafa bannað alla 404 þingmenn flokksins á krá sinni, en Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands hefur verið bannaður á krá hans, „The Farmer's Dog“, frá því hún opnaði í fyrra.