Fréttastofa RÚV
Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu telur að starfsmenn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi viðhaft ámælisverða starfshætti við rannsókn á nauðgun. Nefndin segir embættið hafa látið hjá líða að sinna lögmætu hlutverki sínu við upphaf rannsóknar og ekki tekið skýrslur af meintum sakborningi og vitnum fyrr en rúmum tveimur árum eftir meint brot. Auk þess taldi hún ummæli rannsóknarlögreglumanns, sem bað sakborning afsökunar á að hafa þurft að kalla hann í skýrslutöku, óheppileg. Nefndinni barst erindi frá konu sem taldi að starfsmenn embættisins sem fóru með málið hafi viljandi eyðilagt rannsókn þess. Nefndin óskaði eftir upplýsingum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Svarbréfi embættisins fylgdu hljóðupptökur af skýrslutökum vegna rannsóknarinnar. Nefndin vísaði erindinu frá 2024 vegna þess að hún taldi það ekki falla undir valdheimild hennar þar sem það varðaði framkvæmd á rannsókn sakamáls og eftirlitshlutverk væri í höndum ríkissaksóknara. Erindið var sent til ríkissaksóknara sem endursendi það til nefndarinnar til þóknanlegrar meðferðar og var það tekið fyrir að nýju. Í ákvörðun nefndarinnar eru takmarkaðar upplýsingar um málið. Þar kemur þó fram að lögregla hafi upphaflega hætt rannsókn þess en ríkissaksóknari mælt fyrir um frekari rannsókn. Það var einkum gert á grundvelli þess að upplýsingar um dyraverði hefðu ekki verið rannsakaðar. Þáttur dyravarða er ekki tíundaður frekar í ákvörðun nefndarinnar en kvörtun konunnar til hennar lýtur annars vegar að því að lögregla hafi haft upplýsingar um hvaða dyraverðir voru við störf þegar meint brot átti sér stað. Kvartandi taldi að lögreglan hefði látið hjá líða að upplýsa málið því lögregla hefði á sama tíma verið að byggja upp mál sem tengdist afbrotum annars dyravarðanna. Hins vegar sneri kvörtunin að tilteknum rannsóknarlögreglumanni vegna skýrslutöku af sakborningi eftir að ríkissaksóknari gerði lögreglu að rannsaka málið frekar. Í skýrslutökunni hafi rannsóknarlögreglumaðurinn beðið sakborning afsökunar á því að hafa þurft að kalla hann í skýrslutöku og ekki gert athugasemd við að sakborningur hafi beðið um nafn og heimilisfang brotaþola. Ummæli rannsóknarlögreglumanns óheppileg Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu telur að ummæli rannsóknarlögreglumannsins hafi verið óheppileg og ekki í samræmi við fagleg og vönduð vinnubrögð en telur ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna þeirra. Hins vegar telur nefndin að starfsmenn embættisins hafi viðhaft ámælisverða starfshætti þegar þeir létu hjá líða að sinna lögmæltu hlutverki sínu við upphaf rannsóknar. „Þrátt fyrir að rannsókn málsins hafi verið tekin upp að nýju eftir að niðurstaða ríkissaksóknara lá fyrir þann 31. mars 2021 er ljóst að verulegur dráttur varð á rannsókn málsins og skýrslutökur af meintum sakborningi og vitnum fór ekki fram fyrr en rúmum tveimur árum eftir meint brot,“ segir í ákvörðuninni. Nefndin segir mikilvægt að embættið yfirfari verklag og meti hvort þörf sé á úrbótum svo hægt sé að koma í veg fyrir að sambærilegt atvik eigi sér stað aftur.
Go to News Site