Okkar borg birtir framboðslista
Fréttastofa RÚV

Okkar borg birtir framboðslista

Framboðið Okkar borg hefur birt framboðslista sinn fyrir borgarstjórnarkosningar í maí. Hann leiðir Sigfús Aðalsteinsson, fasteignasali og leikskólakennari, líkt og áður hafði komið fram. Listabókstafur framboðsins er R. Baldur Borgþórsson ráðgjafi og Hlynur Áskelsson framhaldsskólakennari skipa annað og þriðja sætið. Framboð Okkar borgar er sprottið upp úr starfsemi Íslands þvert á flokka sem hefur meðal annars staðið fyrir útifundum um hælisleitenda- og útlendingamál á Austurvelli.

Go to News Site