Fréttastofa RÚV
„Sumir taka bara eitt lag, sumir taka bara hálft lag. Sumir taka bara eina rímu. Þetta flæðir rosalega vel, er mjög litríkt, og gott ferðalag inni í þessum heimi,“ segir Benedikt Freyr Árnason tónlistarmaður, betur þekktur sem Benni B-Ruff. Benni stendur fyrir tónleikum bandarísku rappsveitarinnar Mobb Deep í KR-heimilinu á þriðjudag. Hann hefur, ásamt þeim Kjartani Trauner og Gísla Galdri, safnað saman úrvalsliði íslenskra rappara frá upphafi senunnar á árunum fyrir aldamót og til dagsins í dag, til að hita upp fyrir þá Havoc, Big Noyd og DJ L.E.S. Sviðsatriðið er kennt við REW, sem er vísun til hnappsins sem notaður er til að spóla til baka. Nú á að spóla til baka í íslensku rappsögunni en rapparar af nýja skólanum taka einnig þátt. Sviðssyrpa á mörkum heimildarmyndar REW er samfelld sviðssyrpa þar sem hljóð og sjónræn upplifun mynda eina heild með gömlu og óséðu efni í bland við nýtt. Það mætti jafnvel segja að syrpan sé á mörkum sviðslistar og heimildarmynda en mikið af myndefninu er frá árdögum rappsins á Íslandi. „Þetta byrjaði þannig að við vorum að vesenast í gömlu archivei – ég að búa til heimildarmynd um hip-hop síðan 1993 og Kjartan Trauner búinn að vera að taka upp sjálfur, búa til skate -myndir og safna gömlu archivei síðan '93,“ segir Benni um upphaf REW. „Flestir sem þekkja til Kjartans hafa tekið eftir því að hann er yfirleitt alltaf með cameru á öxlinni, nei, í hendinni. Hann vinnur eiginlega bara með svona old school camerur eins og DV-cams og VHS, eða VHC, og svo framvegis.“ Benni fékk Kjartan til að sjá um sjónræna framsetningu fyrir tónleika, sem styður við tónlistina, fyrir upphitun þeirra Benna og Gísla Galdurs fyrir DJ Shadow tónleika árið 2024. Út frá þem tónleikum hófu þrímenningarnir að þróa saman REW. Nýtt í bland við gamalt REW hitaði síðan upp fyrir bæði tónleika Talibs Kwelis og The Pharcyde og voru rappararnir Byrkir B og Class B þá fengnir með. Fyrir þær syrpur var síðan farið og tekið upp nýtt myndefni til að sýna samhliða því gamla. „Við vorum að taka upp stutt vídjó og alveg upp að næstum heilu myndbandi og láta það synca við það sem við vorum að performa og þeir voru að performa með okkur. Þannig að í bland við gamalt archive -efni þá vorum við að skjóta nýtt,“ segir Benni. Þá notuðu þeir sömu tökuvélar og Kjartan hafði notað á árunum fyrir aldamót. Stíllinn og áferðin á myndefninu er þannig fyllilega í takt við gamla efnið, líkt og myndefnið er í takt við tónlistina. Til gamans má hér sjá þá Benna B-Ruff og Gísla Galdur þeyta skífum, ásamt DJ Nino, í sjónvarpsþættinum At árið 2004. Benni og Gísli eru plötusnúðar REW. Benni B-Ruff stendur fyrir ferðalagi um íslenskt hip-hop ásamt Kjartani Trauner og Gísla Galdri á þriðjudaginn undir merkjum REW. Ferðalag um íslenskt hip-hop Fyrir sviðssyrpu REW næsta þriðjudag hafa Benni, Kjartan og Gísli fengið með sér í lið fjölda íslenskra rappara frá 10. áratugnum og til dagsins í dag. Rapparinn Saint Pete tekur þátt í sviðssyrpunni. Hann skaust á sjónarsviðið árið 2024 með plötunni Græni pakkinn. Alexander Jarl tekur sömuleiðis þátt sem og Birnir, sem er með vinsælustu röppurum Íslands fyrr og síðar. Þá verða Byrkir B og Class B aftur með, en þeir mynduðu á sínum tíma rappsveitina Forgotten Lores ásamt þeim Didda Fel, Introbeats og B-Ruff sjálfum. Rappsveitin Afkvæmi guðanna tekur lagið ásamt Emmsjé Gauta en sveitin gaf nýverið út lagið Borg með rapparanum þjóðkunna. „Við erum með Emilíu Hugrúnu söngkonu, alveg stórkostlega, og við erum með Daron Karl. Þetta eru 43 mínútur í það heila svo fólk átti sig á því að þetta er ekki nokkurra tíma atriði. Þetta er heilt ferðalag á 43 mínútum,“ segir Benni. Subterranean settu tóninn fyrir íslenskt hip-hop Líklega hefur þátttaka Subterranean í sviðssyrpunni vakið einn mesta athygli íslenskra rappunnenda. Hljómsveitin var brautryðjandi í hip-hopi á Íslandi og hefur ekki komið fram í fjölda ára. Benni B-Ruff hefur lengi þekkt liðsmenn Subterranean en honum bregður fyrir á fyrstu plötu þeirra, Central Magnetizm, árið 1997. „Ég held að ég sé 15 ára þegar ég kem þarna fram, er eitthvað að scratcha á þessari plötu og vinn svolítið með þeim. Þau gefa út plötu '97 og verða næstum því bara heimsfræg,“ segir Benni. Hljómsveitin átti lagið My Style Is Phreaky á safnplötunni Wide Angles, sem gefin var út í London. Á plötunni mátti einnig finna lög eftir rappara á borð við Mos Def, Talib Kweli og Pharoahe Monch sem allir voru fyrirferðarmiklir í senunni og eru jafnvel enn. „Þau settu svolítið tóninn að mínu mati, og margra mati, fyrir íslenskt hip-hop. '97 vorum við svolítið að peaka í íslensku hip-hopi, alveg til '99. Þá svona sprakk aðeins bólan,“ segir Benni. Hér má sjá brot úr þættinum Radar frá 19. nóvember 1997 þar sem rætt er við Subterranean, þau Magnús Jónsson (Magse), Karl Kristján Davíðsson (Charlie D), Rögnu Kjartansdóttur (Cell7) og Frew Elfineh (Black Fist). Benni B-Ruff stendur fyrir ferðalagi um íslenskt hip-hop ásamt Kjartani Trauner og Gísla Galdri á þriðjudaginn undir merkjum REW. „Allir bera virðingu fyrir Subterranean og Forgotten Lores, og auðvitað Rottweiler og Afkvæmum guðanna og þessum gömlu sem voru að búa til efni og kannski ekki að spila fyrir fleiri en 500 manns í einu. Núna er þetta orðið þannig að Birnir nær að fylla höllina, Aron Can er að fylla höllina. Þetta er að breytast hratt og hip-hop er að stækka og það er mjög skemmtilegt að sjá,“ segir Benni B-Ruff.
Go to News Site