Mótmæltu lengri þingfundi vegna veisluhalda með bændum
Fréttastofa RÚV

Mótmæltu lengri þingfundi vegna veisluhalda með bændum

Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu tillögu þingforseta um lengri þingfund vegna veisluhalda í tengslum við Búnaðarþing. Þegar greidd voru atkvæði um tillögu forseta kvaddi Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sér hljóðs og gagnrýndi að boðað sé til lengri þingfundar sama dag og Búnaðarþing er haldið. Hefð sé fyrir því að stjórnmálaflokkarnir taki á móti bændum úr sínum röðum í sínum höfuðstöðvum. Þannig hafi Sjálfstæðisflokkurinn boðið bændum til veislu í Valhöll um kvöldmatarleytið. „Mér finnst það vera mjög dapurt. Ég man ekki eftir því að það hafi áður gerst á þeim sama degi ef boðað til kvöldfundar í þinginu.“ Þingflokksformenn Samfylkingar og Viðreisnar bentu á að verið væri að greiða atkvæði um heimild til lengri þingfundar en vel sé hægt að haga þingstörfum þannig að þeim ljúki á tilsettum tíma. Tvö mál eru á dagskrá þingfundar í dag að loknum óundirbúnum fyrirspurnartíma. Atvinnuvegaráðherra mælir fyrir tveimur málum, annars vegar frumvarpi um lagareldi og hins vegar frumvarpi um lax- og silungaveiði. Tillaga þingforseta var samþykkt og sagði Þórunn að lokinni atkvæðagreiðslu að tryggt yrði að þingfundi yrði lokið klukkan átta í kvöld. Deilunum lauk þó ekki þar því þingmenn héldu áfram að gagnrýna þessa ráðstöfun undir liðnum fundarstjórn forseta.

Go to News Site