Rannsaka meint kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Krakkakoti
Fréttastofa RÚV

Rannsaka meint kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Krakkakoti

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið beiðni frá Barnavernd Garðabæjar um að hefja rannsókn á meintu kynferðisbroti gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, í samtali við fréttastofu. Bylgja segir rannsóknina á frumstigi. Hún geti ekki sagt til um hvort brotið hafi verið á einu barni eða fleirum eða hvort starfsmaður leikskólans liggi undir grun. Frekari upplýsingar verði ekki veittar að svo stöddu. Samkvæmt heimildum fréttastofu kom málið upp á fimmtudaginn í síðustu viku og hefur verið til rannsóknar hjá Barnavernd Garðabæjar. Foreldrar barna á leikskólanum voru boðaðir á fund í gærmorgun og þeir upplýstir um stöðuna.

Go to News Site