Hátt í hundrað skjálftar á Reykjaneshrygg
Fréttastofa RÚV

Hátt í hundrað skjálftar á Reykjaneshrygg

Hátt í hundrað jarðskjálftar hafa mælst á Reykjaneshrygg í dag. Skjálftahrina hófst um 25 kílómetra suðvestur af Eldey á Reykjaneshrygg um hádegi í dag. Stærsti skjálftinn var 4,1 að stærð. Hann mældist klukkan hálf fimm síðdegis og er sá stærsti sem mælst hefur á þessum slóðum frá því í september 2025. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni bárust tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Að auki hafa þrír skjálftar mælist yfir 3 að stærð. Jarðskjálftar eru algengir í kringum Reykjaneshrygg en álíka þyrping af skjálftum átti sér stað 8. febrúar. Stærsti skjálftinn mældist kl. 16:30 og var 4,1 að stærð, en þetta er stærsti skjálftinn sem mælst hefur á þessum slóðum síðan í september 2025. Einnig hafa mælst tveir skjálftar yfir 3 að stærð. Veðurstofunni bárust tilkynningar um að stærsti skjálftinn hafi fundist í byggð. Sólahringsvakt Veðurstofunnar heldur áfram að vakta svæðið.

Go to News Site