Fréttastofa RÚV
Tekist hefur verið á um efnahagsmál, drykkjarvatn og hvernig ríkisstjórn ætti að mynda á lokaspretti kosningabaráttunnar fyrir þingkosningar í Danmörku sem verða á morgun. Innflytjendamál hafa einnig verið í brennidepli og í kappræðum í gærkvöld voru flokkarnir sammála um að gera þyrfti breytingar, þó að ekki væri samhljómur um hvers eðils þær ættu að vera. Frambjóðendur hafa verið á þönum í dag og reynt að ná til óákveðinna kjósenda. Margar hafa samkomurnar snúist um að gefa fólki að borða og víða var boðið upp á bakkelsi. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterna, tók bæði þátt í pítsugerðarkeppni og gaf pulsur. Hallgrímur Indriðason fréttamaður og Grímur Jón Sigurðsson myndatökumaður voru í Kaupmannahöfn í dag og fylgdust með lokaspretti baráttunnar. Viðtöl þeirra má sjá í spilaranum.
Go to News Site