Marika og Gunnar Íslandsmeistarar í keilu
Fréttastofa RÚV

Marika og Gunnar Íslandsmeistarar í keilu

Í úrslitum kvenna kepptu Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir, Olivia Clara Steinunn Linden og Marika Lönnroth. Þar var það Marika Lönnroth sem varð Íslandsmeistari. „Það eru fimm ár síðan ég vann þetta síðast og ég er ekki alveg að átta mig á þessu, því ég er tvöfaldur Íslandsmeistari því ég vann líka Íslandsmótið með forgjöf í ár,“ sagði Marika í viðtali við RÚV eftir keppni en úrslitin í kvöld voru sýnd í beinni útsendingu á RÚV 2. Í karlakeppninni kepptu Mikael Aron Vilhelmsson ríkjandi Íslandsmeistari, Gunnar Þór Ásgeirsson meistari frá 2019 og 2024 og Hafþór Harðarson sexfaldur Íslandsmeistari, sem vann síðast árið 2022 sem komust í úrslitin. Þar fagnaði Gunnar Þór Íslandsmeistaratitlinum eftir frábæra frammistöðu. „Þetta var veruleg heppni hjá mér í undanúrslitunum, en ég náði að sýna í úrslitunum að maður getur nú eitthvað í þessu,“ sagði Gunnar í viðtali við RÚV eftir keppnina.

Go to News Site