Vel mögulegt að stýrivextir verði hækkaðir aftur
Fréttastofa RÚV

Vel mögulegt að stýrivextir verði hækkaðir aftur

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir það hafa verið þung spor að hækka stýrivexti og segir vel mögulegt að landsmenn þurfi að búa sig undir frekari hækkun. Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig 18. mars og standa meginvextir bankans í 7,5%. Ásgeir segir vonir hafa staðið til þess að hægt yrði að halda áfram að lækka vexti. „Það voru þung spor að hækka vexti aftur,“ sagði Ásgeir í Silfrinu í kvöld. „Það sem hefur verið í gangi síðustu fimm ár er að það hefur verið gríðarlegur hagvöxtur á Íslandi. Laun hafa hækkað verulega, meira en í öðrum löndum. Við höfum séð gríðarlega mikla aukningu kaupmáttar.“ Þegar stýrivaxtahækkunin var tilkynnt sagði Ásgeir að hana mætti rekja til hækkunar á opinberum gjöldum, afleiddra áhrifa og áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum markaði í byrjun árs. Ásgeir segist hafa áhyggjur af mögulegum áhrifum þess að verkalýðsfélög virki forsenduákvæði kjarasamninga í haust. Hann kveðst hins vegar vera bjartsýnn. „Ég bind vonir við að þessi ágætu verkalýðsfélög og þeir leiðtogar sem við höfum muni semja sig eða muni semja sig fram hjá þessum forsenduákvæðum og ég hef fulla trú á að þau geri það og ég hef líka fulla trú á þessari ríkisstjórn þannig að ég trúi því að við getum alveg unnið þetta saman.“ Þurfum við að búa okkur undir enn frekari vaxtahækkanir á næstu mánuðum? „Það er vel möguleiki, já.“ Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Seðlabankastjóri segir vel mögulegt að stýrivextir verði hækkaðir aftur en síðasta stýrivaxtaákvörðun hafi verið þung. Hann hefur áhyggjur af mögulegum áhrifum þess að verkalýðsfélög virkji forsenduákvæði í kjarasamningum í haust en kveðst bjartsýnn.

Go to News Site