Fréttastofa RÚV
Minnst 33 fórust þegar Hercules-flugvél kólumbíska hersins hrapaði í flugtaki nærri landamærunum að Perú og Ekvador. Tugir eru slasaðir. Alls voru 114 hermenn og 31 manns áhöfn um borð í vélinni að sögn héraðsstjóra Puerto Leguizamo, sem upplýsti einnig að rannsókn á tildrögum slyssins væri þegar hafin. Herir Kólumbíu og Ekvador hafa síðustu vikur glímt við sveitir uppreisnarmanna og glæpagengja í héraðinu. Hermennirnir voru á leið frá Puerto Leguizamo til annarrar herstöðvar í Amazon. Forsetinn Gustavo Petro birti myndskeið á samfélagsmiðlum sem sýnir flugvélina reyna að klifra á loft áður en hún missir hæð og hrapar niður í skóglendið umhverfis flugvöllinn. Petro sagði slysið hræðilegt og bætti við að brýnt væri að endurnýja tækjabúnað hersins án þess að bágt ástand hans væri ástæða þess. Yfirvöld segja flugvöllinn lítinn í sniðum og erfitt að flytja látna og særða á brott. Varnarmálaráðherrann Pedro Sanchez sagði of snemmt að ákvarða hvað varð til þess að flugvélin hrapaði. Slysið sé sorglegt og afar erfitt fyrir landsmenn alla. Þetta er í annað skipti á innan við mánuði að Hercules flugvél ferst í Suður-Ameríku. Þann 27. febrúar létu minnst 24 lífið þegar slík vél á vegum Bólivíuhers fórst í lendingu nærri La Paz.
Go to News Site