Evrópusambandið og Ástralía gera fríverslunarsamning eftir áralangar viðræður
Fréttastofa RÚV

Evrópusambandið og Ástralía gera fríverslunarsamning eftir áralangar viðræður

Áströlsk stjórnvöld og Evrópusambandið hafa komist að samkomulagi um fríverslun eftir átta ára samningaviðræður. Ástralski forsætisráðherrann Anthony Albanese og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, undirrituðu samningana í Canberra í morgun. Þau sögðu niðurstöðuna hagstæða og voru sammála um mikilvægi samkomulagsins í breyttum heimi. Útflutningur ríkja Evrópusambandsins til Ástralíu gæti aukist um meira en þrjátíu af hundraði næsta áratuginn á grundvelli samningsins. Sáttir tókust um áframhaldandi notkun ástralskra framleiðenda á evrópskum matvælaheitum á borð við feta og prosecco, með nánar útfærðum skilyrðum, sem var einn meginásteitingarsteinninn í samningaviðræðunum. Kvóti á innflutning ástralsks nautakjöts til Evrópu tífaldast á næsta áratug þótt ekki hafi öllum kröfum framleiðenda verið mætt. Lúxustollur verður felldur niður á flesta rafmagnsbíla framleidda í Evrópu. Áströlsk yfirvöld fella niður nánast alla tolla af vörum frá Evrópusambandinu, þar á meðal af víni, súkkulaði, ávöxtum og grænmeti að sögn framkvæmdastjórnarinnar, sem mun spara áströlskum innflytjendum og almenningi yfir ellefu milljónir evra árlega. Einnig var samið um aukna samvinnu í varnarmálum vegna „tímabundinna áskorana“, eins og það er orðað í sameiginlegri yfirlýsingu. Samvinna verður aukin við varnir á úthöfum og uppbyggingu netöryggiskerfa. Eins verður leitað leiða til að mæta fjölþáttaógnum ásamt annarri íhlutun erlendra afla. Samstarfið snýst einnig um að tryggja öryggi gegn neikvæðum áhrifum nýrrar og byltingarkenndrar tækni á borð við gervigreind.

Go to News Site