Fréttastofa RÚV
Þrír voru drepnir og fjórtán særðust í loftárás Rússlandshers á borgirnar Poltava og Zaporizhia í nótt. Loftvarnarflautur ómuðu um nær gjörvalla Úkraínu. Roskinn maður gengur hjá fjölbýlishúsi skemmdu eftir loftárásir. Myndin er úr safni.EPA / KATERYNA KLOCHKO Héraðsstjórinn Ivan Fedorov segir í færslu á samskiptamiðlinum Telegram að sex fjölbýlishús, tvö einbýlishús, verslanir og iðnaðarhúsnæði hafi skemmst verulega í árásunum. Hann sagði björgunarsveitir að störfum. Volodymyr Zelensky forseti hafði í daglegu ávarpi sínu varað við stórfelldum árásum Rússa, sem hann byggði á ítarlegri eftirgrennslan leyniþjónustunnar.
Go to News Site