Ísrael skýtur skotflaugum að Beirút og Íranir að Ísrael
Fréttastofa RÚV

Ísrael skýtur skotflaugum að Beirút og Íranir að Ísrael

Ísraelsher gerði loftárásir á úthverfi líbönsku höfuðborgarinnar Beirút í nótt, fyrsta sinni í nokkra daga að sögn ríkisfjölmiðla Líbanons. Ísraelar handtóku einnig tvo liðsmenn Hezbollah í landinu sunnanverðu. Bandaríkin og Ísrael hafa lagt til atlögu að yfir níu þúsund skotmörkum í Íran frá upphafi stríðsins fyrir rúmum þremur vikum. Þar á meðal eru 140 skip samkvæmt upplýsingum miðstjórnar bandaríska heraflans í Mið-Austurlöndum. Olíuverð lækkaði örlítið í gær eftir að Bandaríkjaforseti sagði samningaviðræður hafnar við Íranstjórn, sem þvertekur fyrir að nokkuð slíkt standi yfir. Íransher hefur skotið skæðadrífu eldflauga að Ísrael í morgun.

Go to News Site