Samfylkingin dalar enn
Fréttastofa RÚV

Samfylkingin dalar enn

Samfylkingin mælist með 25,5 prósenta fylgi í nýjustu skoðanakönnun Maskínu, sem gerð var í febrúar og mars. Flokkurinn nýtur enn mest fylgis meðal landsmanna en hefur samt gefið töluvert eftir síðustu mánuði. Mestar voru vinsældir Samfylkingarinnar í september þegar 31,9 prósent sögðust myndu kjósa flokkinn. Fylgið hefur ekki verið minna síðan í mars í fyrra þegar það var 23,3 prósent. Miðflokkurinn er enn sá flokkur sem á næstmestu fylgi að fagna. Hann hefur þó gefið eftir og farið úr 22,2 prósentum í janúar í 18,4 prósent í nýjustu könnuninni. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Maskínu sem fréttastofa Sýnar og Vísis greindi frá í gær. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 16,1 prósent atkvæða og stendur í stað milli mánaða. Fjórtán prósent segjast myndu kjósa Viðreisn, litlu fleiri en í síðasta mánuði. Framsóknarflokkurinn mælist með svipað fylgi og fyrir mánuði, 7,1 prósent. Flokkur fólksins fengi viðspyrnu, samkvæmt nýju könnuninni og fengi 5,8 prósent atkvæða ef kosið væri nú en fyrir mánuði sögðust 4,8 prósent myndu kjósa flokkinn. Það hefði Píratar eru á svipuðum slóðum og í síðustu könnun, með 5,0 prósent, og mælast inn á þingi annan mánuðinn í röð. Vinstri græn mælast enn utan þings, með 4,4 prósenta fylgi, litlu minna en í síðasta mánuði. 3,5 prósent lýsa stuðningi við Sósíalistaflokkinn. Samkvæmt þessu myndu stjórnarflokkarnir fá 45 prósent atkvæða og stjórnarandstöðuflokkarnir 42 prósent. Þettán prósent myndu kjósa flokka sem eiga ekki sæti á þingi. Þjóðarpúls Gallup febrúar 2026 Fleiri kannanir og greiningar má finna á ruv.is/kosningar .

Go to News Site