Fréttastofa RÚV
Héraðssaksóknari hefur ákært átta karlmenn á þrítugs- til sextugsaldri fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og hlutdeild í brotinu. Tveimur er gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á 2,6 kílóum af kókaíni. Þau voru falin í ferðatösku manns sem flaug til Íslands frá Hollandi fimmtudaginn 20. nóvember. Næsta dag var kókaínið sótt á hótel í Reykjavík og flutt þaðan í íbúð í nágrenninu sem hafði verið leigð í gegnum bókunarsíðuna Booking. Tveir eru ákærðir fyrir að standa að innflutningnum en sex fyrir margvíslega aðkomu að því. Í ákæru er því lýst hvernig einn mannanna sex fékk það hlutverk að útvega íbúð fyrir mennina tvo sem ákærðir eru fyrir að standa að smyglinu. Hann bað annan mann um að leigja íbúð og sá fékk þann þriðja til verksins. Fjórði maðurinn var fenginn til að útvega vigt og afhenda íbúðina. Fimmti maðurinn var fenginn til að sækja þrjú kíló af kókaíni og 1.250 þúsund krónur í reiðufé í íbúðina þangað sem fíkniefnin höfðu verið flutt. Sjötti maðurinn er ákærður fyrir að hafa farið inn í íbúðina að undirlagi óþekkts manns og dvalið þar í 27 mínútur. Ákæruvaldið krefst þess að mennirnir verði dæmdir til refsingar og að kókaínið, peningar, grammavogir, plöstunarvél, farsímar og fartölva verði gerð upptæk.
Go to News Site