Fréttastofa RÚV
Hættustig hefur verið á Seyðisfirði síðan í gær, hús voru rýmd vegna snjóflóðahættu og þurftu um tíu manns að yfirgefa heimili sín. Óvissustig er einnig í gildi á Austfjörðum öllum. Fengu inni hjá vinum og kunningjum Fjallvegir á Austurlandi lokuðust í gær í miklum snjóbyl sem stóð í alla nótt og björgunarsveitir aðstoðuðu sjúkrabíl við að komast með sjúklingi frá Egilsstöðum til Akureyrar. Óvissustigi var lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum og á Seyðisfirði var lýst yfir hættustigi og hús rýmd. Á Seyðisfirði voru hús rýmd á reitum rétt utan við þorpið sjálft, má segja bæði norðan og sunnan megin í firðinum. Helgi Haraldsson, formaður björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði, segir að mikið hafi snjóað og skafið innanbæjar á Seyðisfirði í nótt. „Ég er að blása snjó hérna í garðinum og reyna að moka upp bílana hjá mér og það er búinn að vera snjómokstur hér síðan eldsnemma í morgun og varð var við þá þegar ég var að vakna. Þetta voru held ég eitthvað um 10 manns og það fór bara til vina og kunningja og eitthvað sem þau fundu sér sjálf. Þetta er oft einfalt þegar eru svona fáir í rýmingum,“ sagði Helgi þegar við heyrðum í honum um klukkan 10 í morgun. Mestar áhyggjur af svæði norðan megin í firðinum Ofanflóðavakt Veðurstofunnar fylgist með á Seyðisfirði í gegnum sjálfvirka snjódýptarmæla en lélegt skyggni hefur verið til fjalla og tafði það í morgun ákvörðun um hvort óhætt væri að aflýsa hættustigi og rýmingum. Bjarki Borgþórsson, eftirlitsmaður Veðurstofunnar, segir fannfergi niðri í þorpinu en minna virðist hafa safnast í fjöllin en spáð var. Mesta úrkoman hafi lent sunnar en menn vilji sjá betur í gilin til að meta hættuna en um klukkan hálf eitt hafði ekki enn verið hægt að sjá nógu vel til fjalla. Mestar áhyggjur eru norðan megin í firðinum af svæði undir utanverðum Bjólfi. Það er utan við leiðigarð og ofan við farfuglaheimilið Hafölduna. Þar eyðilagðist Hafsíld í snjóflóði úr Bjólfsöxl í mars 1995. Bæjarbúar lokaðir inni á sama tíma og snjóflóðahætta vofir yfir Þetta er ekki í fyrsta sinn sem snjóflóðahætta er á Seyðisfirði á sama tíma og bæjarbúar eru innlyksa á bak við ófæra Fjarðarheiði. Helgi segir ónotatilfinningu fylgja slíkum aðstæðum. „Við þekkjum þetta að vera lokuð inni og við þekkjum skriðuföllin og þetta allt saman. Þetta er ekkert skemmtilegt þegar svona ástand er. Við skulum vona að það fari ekki í það sem var á milli 1970 og 80 þegar voru áætlunarferðir yfir heiðina á snjóbíl. Við skulum vona að það verði ekki. Við fáum göng einhvern tímann. Við skulum vona það,“ segir Helgi Haraldsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði. Vegagerðin náði að opna Mývatns- og Möðrudalsöræfi á milli Egilsstaða og Mývatns í hádeginu. Í morgun var beðið með mokstur á Fjarðarheiði og Fagradal þangað til vind lægði en vegirnir ættu að opnast síðar í dag. Veðrinu er að slota og verður skárra á morgun en næsta lægð kemur svo á fimmtudag. Rafmagn fór af á Hornafirði um stund síðdegis í gær þegar bilun varði í Hafnarlínu eitt. Fram kemur á vef Landsnets að ekki sé hægt að leita að bilun vegna veðurs og því fái notendur á Höfn rafmagn í gegnum kerfi RARIK fram eftir degi.
Go to News Site