Fréttastofa RÚV
Vegagerðin verður með umferðarstýringu á Snæfellsnesi, Reykjanesskaga og sunnanverðum Vestfjörðum þann 12. ágúst vegna almyrkva á sólu. Í tilkyningu á vef Vegagerðarinnar segir að búist sé við verulegri aukningu í umferð á ákvæðum svæðum. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður gripið til tímabundinnar umferðarstýringar frá hádegi daginn sem sólmyrkvinn verður. Hún varir fram yfir sólmyrkvann eftir því sem þörf krefur. Vegagerðin gerir ráð fyrir að hámarkshraði verði lækkaður og bendir vegfarendum á að gera ráð fyrir lengri ferðatíma. Á Reykjanesi verður umferðarstýring á Garðskagavegi 45 frá Nesvegi að Sandgerði og Vatnsleysustrandarvegi 420 frá Vogum að Kúagerði. Þar er gert ráð fyrir miklum fjölda gesta sem vilja fylgjast með almyrkvanum. Á Snæfellsnesi verður einstefna á Útnesvegi 574frá Hellissandi að Búðum. Það er enn til skoðunar í hvora áttina einstefnan verði. Á Vestfjörðum er gert ráð fyrir tímabundinni einstefnu á Örlygshafnarvegi 612 og Rauðasandsvegi. Einstefnan verður sett á út fjörðinn á hádegi og eftir að atburðinum lýkur verður umferð stýrt til baka sömu leið. Með þessu á að tryggja greiða leið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp. Frekari upplýsingar má finna á vef Vegagerðarinnar .
Go to News Site