Fréttastofa RÚV
Vor til Vinstri og VG í Hafnarfirði hafa tilkynnt um sameiginlegt framboð til bæjarstjórnarkosninga í vor. Framboðið nefnist Vinstrið í Hafnarfirði. Hafnarfjörður er annað sveitarfélagið sem tilkynnt hefur um framboð undir formerkjum Vinstrisins í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði er Ester Bíbí Ásgeirsdóttir verkefnastjóri. Annað sæti listans skipar Svenný Kristins, aðstoðarmaður iðjuþjálfa og tónsmiður. Í þriðja sæti er Davíð Arnar Stefánsson fjallaleiðsögumaður og í því fjórða Guðrún Lína Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður. Margrét Pétursdóttir leiðsöguman er í fimmta sæti listans og Anna Sigríður Sigurðardóttir framhaldsskólakennari í því sjötta. „Þau málefni sem við teljum brýnust eru húsnæðismál, skóla- og menntamál og samgöngu- og skipulagsmál. Við viljum efla fjölbreytileika og aðgengi að menningu í bænum og leggjum áherslu á umhverfismál út frá náttúruvernd en líka til að fegra umhverfi okkar,“ segir í tilkynningu flokksins. Vinstrihreyfingin-grænt framboð hlaut 4,3% atkvæða í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022.
Go to News Site