Fréttastofa RÚV
Framkvæmdastjóri lækninga við HSA segir Fjarðarheiðargöng nauðsynleg til að tryggja örugga heilbrigðisþjónustu á Austurlandi. Læknar, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir fluttu sjúkling frá Egilsstöðum til Akureyrar í víðtækum vegalokunum í gærkvöldi. Ófært hefur verið milli Egilsstaða, þar sem veikindin komu upp, og Neskaupstaðar, þar sem sjúkrahús fjórðungsins er staðsett, síðan í gærkvöld. Veður var of slæmt til flugs og ófært var norður á Akureyri. Eyjólfur Þorkelsson, framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Austurlands, segir aðstæðurnar ekki einsdæmi, en hann ritaði pistil á Vísi um málið fyrr í dag. „Það kemur oft fyrir að það er illa fært eða ófært á milli kjarna hér austanlands sem gerir að verkum að skipulag heilbrigðisþjónustu þarf að taka mið af því,“ segir Eyjólfur í samtali við fréttastofu. Hann vill fá Fjarðarheiðargöng aftur á dagskrá. Göngin voru slegin út af borðinu í nýrri samgönguáætlun þrátt fyrir að vera tilbúin til útboðs. Fljótagöng milli Siglufjarðar og Fljóta voru sett efst á listann og í öðru til þriðja sæti eru Fjarðagöng: tvenn göng sem tengja Seyðisfjörð og Mjóafjörð annars vegar og Mjóafjörð og Norðfjörð hins vegar. „Til þess að sú mikla samgöngubót sem Mjóafjarðargöng gætu orðið verði raunveruleg samgöngubót, þá þarf líka og þarf fyrst að vera komin tengin milli þeirra gangna og uppá Hérað, annars erum við að stefna aukinni umferð um veg sem þegar er hættulegur,“ segir Eyjólfur um Fjarðarheiði. „Þessi göng eru tilbúin til útboðs, þar er hægt að byrja á þeim göngum á meðan klárað er að rannsaka hin göngin og fara svo í þau í beinu framhaldi þannig að við þyrftum ekki endurtekið ár eftir ár að vera í nákvæmlega sömu aðstæðum.“
Go to News Site