Salah yfirgefur Liverpool
Fréttastofa RÚV

Salah yfirgefur Liverpool

Liverpool og Mohamed Salah sendu í kvöld frá sér tilkynningu þess efnis að Egyptinn yfirgefi enska knattspyrnuliðið eftir leiktíðina. Salah gekk í raðir Liverpool frá ítalska félaginu Roma sumarið 2017 og var fljótur að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna rauða hersins. Salah hefur skorað 189 mark í ensku úrvalsdeildinni á þessum níu árum og er fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar síðan efstu deild Englands var gefið þetta heiti árið 1992. Aðeins Englendingarnir Alan Shearer (260), Harry Kane (213) og Wayne Rooney (208) hafa skorað fleiri deildarmörk en Salah í ensku úrvalsdeildinni. Alls eru mörk Salah í deildinni 191 því hann skoraði tvö mörk þegar hann var í Chelsea leiktíðina 2013-2014. Salah var lykilmaður í því að Liverpool varð enskur meistari vorið 2020 og svo aftur 2025 og einnig þegar liðið vann Meistaradeild Evrópu árið 2019. Að auki hefur Salah fagnað sigri í ensku bikarkeppninni og deildabikarkeppninni, HM félagsliða, Ofurbikar Evrópu og í Samfélagsskildinum og því unnið alla helstu titla sem hægt er að vinna með Liverpool. Að auki hefur hann fjórum sinnum orðið markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar, þrisvar verið valinn leikmaður ársins af almenningi, þrisvar af leikmönnum og þrívegis af íþróttafréttamönnum í Bretlandi. Í tilkynningu Liverpool og Salah lýsir Egyptinn ást sinni á félaginu og stuðningsfólki þess og að Liverpool muni ávallt eiga sérstakan stað í sínu hjarta eftir árin níu í Bítlaborginni. Af virðingu við stuðningsfólk Liverpool hafi hann viljað að allir vissu nú þegar að yfirstandandi leiktíð yrði hans síðasta fyrst það væri orðið ljóst. Salah átti eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool en samkomulag hefur náðst um það að hann yfirgefi félagið í sumar. Ekkert kemur þó fram um það hvert næsta lið hans verður, hvort samningi hans við Liverpool verði rift í lok leiktíðar, eða hvort næsti vinnuveitandi hans muni greiða kaupverð fyrir hann.

Go to News Site