Hrannari skipt út fyrir úrslitakeppnina
Fréttastofa RÚV

Hrannari skipt út fyrir úrslitakeppnina

Hrannar Guðmundsson er hættur hjá Stjörnunni.Mummi Lú Stjarnan hefur sagt Hrannari Guðmundssyni upp störfum sem þjálfara karlaliðs félagsins fyrr en ætlað var. Tilkynnt hafði verið í febrúar að hann myndi hætta eftir leiktíðina og Tandri Már Konráðsson og Sverrir Eyjólfsson tækju við en þeir stíga inn fyrr en áætlað hafði verið. Stjarnan endaði í 11. sæti úrvalsdeildarinnar og fer því í umspil eða eins konar úrslitakeppni með Gróttu, Herði og Fjölni sem léku í næstefstu deild í vetur, um sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Nú er ljóst að Hrannar mun ekki stýra Stjörnunni í þessum leikjum heldur Tandri og Sverrir eftir tilkynningu Stjörnunnar í kvöld.

Go to News Site