Urðarhvarf léttir verulega á Landspítalanum
Fréttastofa RÚV

Urðarhvarf léttir verulega á Landspítalanum

Verulega léttir á Landspítalanum næstu vikur því á mánudag verður byrjað að flytja fólk þaðan sem ekki hefur verið hægt að útskrifa og af Vífilsstöðum í glænýtt hús við Urðarhvarf. Urðarhvarf verður ekki eiginlegt hjúkrunarheimili og verða þau sem þar dvelja ekki með fasta búsetu heldur í bið eftir að geta flutt á hjúkrunarheimili. Í þessu átta hæða húsi áttu að vera skrifstofur en eftir að ákveðið var að nýta húsið til hjúkrunuarþjónustu gekk undirbúningurinn mjög hratt. „Við erum tilbúin með megnið af því sem þarf, ekki allt en nóg til að geta byrjað,“ segir Teitur Guðmundsson, læknir og forstjóri Heilsuverndar. Gengið hefur vel að ráða fólk að hans sögn. „Við fengum nú 917 umsóknir um störf þegar við auglýstum svo það hefur gengið afar vel.“

Go to News Site