Fréttastofa RÚV
Börnin á leikskólanum Ævintýraborg við Eggertsgötu tóku daginn snemma en þau hafa undirbúið þennan dag lengi. Í nóvember byrjuðu þau að föndra hluti sem þau seldu á jólamarkaði í desember. Eftir áramótin voru svo greidd atkvæði um hvaða málefni þau vildu styrkja. Barnaspítali Hringsins varð fyrir valinu og þau fóru með langa innkaupalista í Kringluna í dag. Eftir verslunarferðina var komið að því að afhenda Barnaspítala Hringsins gjafirnar.
Go to News Site