Stjórnvöld lýsa yfir neyðarástandi í orkumálum
Fréttastofa RÚV

Stjórnvöld lýsa yfir neyðarástandi í orkumálum

Stjórnvöld í Moldóvu lýstu yfir neyðarástandi í orkumálum í gær eftir að samband rofnaði við mikilvæga rafmagnslínu eftir árásir Rússa í Úkraínu. Moldóva flytur inn rafmagn frá Rúmeníu, aðallega um rafmagnslínur sem fara í gegnum suðurhluta Úkraínu. Stjórnvöld í Moldóvu sögðu að brak af dónum væri nærri rafmagnslínunum og áður en hægt er að hefja viðgerð þarf að hreinsa svæðið af jarðsprengjum. Þá er viðbúið að viðgerðin sjálf á rafmagnslínunni taki allt að viku. Þingið í Moldóvu ákvað að lýsa yfir 60 daga neyðarástandi. Forsætisráðherra landsins, Alexandru Munteanu, sagði aðgerðirnar nauðsynlegar svo hægt væri að bregðast skjótt við neyðarástandinu. Hann biðlaði til fólks að forðast óþarfa orkunotkun, sér í lagi á háannatímum og bað íbúa landsins að standa saman. Forseti Moldóvu, Maia Sandu, sagði í færslu á samskiptamiðlinum X að árásir Rússa á orkuinnviði væru stríðsglæpir og árás á alla. Hún sagði jafnframt Rússa eina bera ábyrgð á árásinni.

Go to News Site