Bandaríkjaforseti sendi friðaráætlun til Írana
Fréttastofa RÚV

Bandaríkjaforseti sendi friðaráætlun til Írana

Donald Trump Bandaríkjaforseti sendi friðaráætlun til stjórnvalda í Íran í gær eftir að írönsk stjórnvöld tilkynntu í gær að ákveðnum olíuflutningaskipum yrði leyft að sigla um Hormússund. Trump sagði að viðræður væru hafnar milli Bandaríkjanna og Írans en stjórnvöld í Íran hafa þó ekki staðfest neinar formlegar viðræður. Stjórnvöld í Íran hafa tilkynnt Alþjóðasiglingamálastofnuninni að skip vinveittra þjóða geti siglt örugg um Hormússund, það er skip sem hvorki taka þátt í árásum á Íran né tengjast Bandaríkjunum né Ísrael. Þrátt fyrir þetta hafa mörg skip forðast að sigla um sundið þar sem tryggingafélög hafa neitað að taka áhættuna. Olíverð féll um tæp sex prósent við tilkynningu Bandaríkjaforseta um friðaráætlunina. Fréttaveitan AFP greinir frá því að The New York Times hafi heimildir um það að Bandaríkin hafi sent Írönum 15 liða friðaráætlun til Pakistan sem miðlaði henni áfram til Írans. Forsætisráðherra Pakistans hefur boðist til að halda viðræðum milli Íran og Bandaríkjanna. Ísraelska sjónvarpsstöðin Channel 12 greindi frá því að Trump væri að leggja til eins mánaðar vopnahlé og að á þeim tíma myndu þjóðirnar ræða tillögur varðandi afhendingu Írana á auðguðu úrani og bann við frekari auðgun úrans. Íranar myndu tryggja örugga umferð skipa um Hormússund. Náist samningar um þessar tillögur myndu allar refsiaðgerðir gegn Íran falla niður en þær hafa verið í gildi í ólíkum myndum síðastliðin ár. Þrátt fyrir friðaráætlun Bandaríkjaforseta hafa árásir haldið áfram í Mið-Austurlöndum. Ísraelar gerðu árásir á Líbanon og Íran í nótt. Þá gerðu Íranar árásir á Ísrael.

Go to News Site