Vísir
Elísa Kristinsdóttir ætlaði sér að hlaupa í utanvegahlaupi á Tenerife um helgina. En vegna veðurs endaði hún á Ítalíu og vann ótrúlegan sigur í 75 kílómetra hlaupi. Elísa Kristinsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann Chianti Ultra Trail hlaupið á laugardaginn. Hún setti um leið nýtt og glæsilegt brautarmet. Elísa hljóp kílómetrana á 6 klukkutímum, 22 mínútum og 31 sekúndu.
Go to News Site