Fréttastofa RÚV
Kona sem reyndi að smygla um fjórtán kílóum af fíkniefnum til landsins var í gær dæmd til þriggja ára og tíu mánaða fangelsisvistar. Hún tók að sér að flytja efnin gegn greiðslu. Þetta er óvenju mikið magn og því þyngri refsing en venja er til í málum sem þessu. Þegar konan, Carmen Petronelle Rutazibwa, kom með flugi frá Belgíu milli jóla og nýárs fundust rúm fjögur kíló af kókaíni og tæp sex kíló af hassi í farangri hennar. Hún játaði sök en fór fram á vægustu refsingu sem lög leyfa. Dómari rakti í niðurstöðu sinni að ekki væri vitað til þess að konan hefði áður brotið af sér og að hún hefði ekki skipulagt smyglið heldur tekið að sér að flytja fíkniefnin gegn greiðslu. Hann sagði að þó yrði að líta til þess að hún hefði flutt verulegt magn af sterku kókaíni og mikið magn af hassi sem átti að selja hér á landi. Hún var því dæmd til þriggja ára og tíu mánaða fangelsisvistar. Frá því dregst gæsluvarðhald frá 29. desember.
Go to News Site