Danski þjóðarflokkurinn bætti við sig 11 þingsætum
Fréttastofa RÚV

Danski þjóðarflokkurinn bætti við sig 11 þingsætum

Danski þjóðflokkurinn, Dansk Folkeparti, bætti við sig miklu fylgi í þingkosningunum í Danmörku í gær eða alls 11 þingsætum. Flokkurinn fer því úr 5 sætum í 16. Flokkurinn fékk alls 9,1% atkvæða. Hallgrímur Indriðason, fréttamaður RÚV, og Grímur Jón Sigurðarson, tökumaður RÚV, tóku stutt viðtal við Morten Messerschmitt, leiðtoga Danska þjóðarflokksins, í gærkvöld skömmu áður en endanleg úrslit lágu fyrir. Þá var þó ljóst að flokkurinn var að bæta við sig þingsætum. Aðspurður um það hvort Messerschmitt gæti hugsað sér að fara í ríkisstjórn og þá með hverjum sagði hann að hann vildi gjarnan vera í ríkisstjórn en líklega myndi hann enda í stjórnarandstöðu. „Ég vil mjög gjarnan vera í ríkisstjórn, fyrst og fremst með sjálfum mér og það get ég ekki með 7,5% atkvæða. Ég myndi vilja vera með borgaralegu flokkunum en ég enda líklegast í stjórnarandstöðu því ég vil hvorki gera Lars Lökke né Mette Frederiksen að ráðherra“, sagði Messerschmitt. Borgaralegu flokkarnir sem Messerschmitt vísar til eru Vinstri (Venstre) og Íhaldsflokkurinn (Det Konservative Folkeparti), (Liberal Alliance), Danski þjóðarflokkurinn (Dansk folkeparti), Frjálslynda bandalagið (Liberal Alliance), Danmerkurdemókratarnir (Danmarksdemokraterne) og Borgaraflokkurinn (Borgernes Parti). Þessir flokkar tilheyra bláu blokkinni svokölluðu og fengu samanlagt 77 þingsæti, en 90 þingsæti þarf til að mynda meirihluta á danska þinginu. Leiðtogi Danska þjóðarflokksins sagði í viðtali við RÚV að hann vildi gjarnan í ríkisstjórn, en flokkurinn endi líklega í stjórnarandstöðu. Hann segist ekki vilja fara í ríkisstjórn með Mette Frederiksen eða Lars Løkke Rasmussen.

Go to News Site