„Þegar fílarnir dansa er ekki gott að vera gras“
Fréttastofa RÚV

„Þegar fílarnir dansa er ekki gott að vera gras“

„Viljum við lenda á milli stórveldisblokka sem eru að toga heiminn í óútreiknanlegar áttir? Þegar fílarnir dansa er ekki gott að vera gras,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra þar sem hún sat fyrirs vörum á opnum fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Hún segir að í slíku umhverfi sé mikilvægt hvar Ísland staðsetur sig. Fullveldi megi styrkja með samvinnu við aðra, ekki með því að láta lítið fyrir sér fara. Efni fundarins var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin áætlar að atkvæðagreiðslan verði haldin 29. ágúst. Þorgerður Katrín segir að sínu mati geti Ísland séð viðskipti vopnvædd bæði austanhafs og vestan og leita þurfi leiða til að koma fyrirtækjum og efnahag landsins í skjól. Að hennar pólitíska mati er gluggi núna til að skoða aðild að ESB. Önnur lönd séu einnig að endurmeta stöðu sína í ljósi heimsmálanna. Yfirráð yfir auðlindum tryggð Fulltrúar bæði Sjálfstæðisflokks og Miðflokks kröfðu ráðherra um svör um það hvort tryggja ætti yfirráð Íslands yfir sjávarauðlindum í viðræðum við Evrópusambandið velji þjóðin að halda þeim áfram. Ráðherra sagði yfirráð yfir auðlindum vera ófrávíkjanlegt skilyrði. „Við gerum allt til að tryggja yfirráð yfir okkar auðlindum.“ Þorgerður Katrín segir að hún telji að varnarmál myndu skipa stærri sess í samningsmarkmiðum Íslands nú frekar en 2009. Þá muni yfirráð yfir auðlindum áfram vera veigamikið atriði. Aðildarviðræður séu ekki hafnar og engin samtöl hafi verið tekin enn um forræði yfir auðlindum. Aðildargjöld Íslands á bilinu 10-15 milljarðar Ráðherra var spurð hverjar greiðslur Íslands til Evrópusambandsins gætu verið. Hún sagði að miðað við það hlutfall sem Finnland greiðir af vergri landsframleiðslu gætu aðildargjöld Íslands verið á bilinu 10-15 milljarðar. Á móti félli svo niður 8 milljarða greiðsla vegna EES-samningsins.

Go to News Site