Fréttastofa RÚV
Það vakti athygli þegar Landspítalinn greip til þess ráðs að vista sjúklinga í bílageymslu við bráðamóttökuna. Þetta var neyðarúrræði, sagði spítalinn; óvenju mörg hálkuslys höfðu orðið, inflúensusýkingum fjölgað auk þess sem 93 sjúklingar lágu á spítalanum og biðu eftir að komast að á hjúkrunarheimili. „Brestur á björgun“ á bráðamóttökunni í desember Eftir þennan fréttaflutning fóru fulltrúar frá embætti landlæknis í eftirlitsheimsókn og í minnisblaði sem forstjóri spítalans og heilbrigðisráðherra fengu, og Spegillinn fékk afhent, kom fram að ástandið minnti um margt á það sem kallað er á íslensku „brestur á björgun“ eða failure to rescue upp á ensku. Landlæknir benti á að starfsfólk og stjórnendur bráðamóttökunnar hefðu lengi bent á að öryggi sjúklinga væri í hættu og að aðstæður á bráðamóttökunni væru óviðunandi. Jafnframt voru viðraðaðar áhyggur af því að svona ástand gæti komið upp aftur. Eitt af því sem lögð var áhersla á í minnisblaðinu var að flýtt yrði þeim umbótum sem spítalinn fyrirhugaði að gera varðandi flokkun sjúklinga á bráðamóttökunni. Breskir sérfræðingar kallaðir til Undirbúningur við þessa breytingar hefur staðið yfir síðan í haust og byggist á breskri fyrirmynd. Hingað hafa komið breskir sérfræðingar til að aðstoða við innleiðinguna og vonir eru bundnar við að breytingarnar vinni á því ófremdarástandi sem verið hefur á bráðamóttökunni um allnokkurt skeið. „Við ætlum að breyta því hvernig bráðaþjónustan virkar, ekki bara bráðamóttakan. Með tilkomu nýrrar einingar ætlum við að dreifa álaginu þannig að fólk þurfi ekki að búa við þrengslin á bráðamóttökunni heldur komist fyrr í hendur reyndra aðila á þremur mismunandi stöðum,“ segir Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu á Landspítalanum. Þessir þrír mismunandi staðir sem Rafn nefnir eru bráðamóttaka, bráðadagdeild og bráðamatsdeildin en sú síðastnefnda er tuttugu rúma gámaeining sem nú rís við bráðamóttökuna og beðið hefur verið eftir í þó nokkurn tíma; hún á að brúa bilið þar til nýr meðferðarkjarni verður opnaður eftir fimm ár. „Þetta er ekki dregið uppúr hattinum hér heldur byggt á gögnum erlendis frá sem sýna að þessar aðferðir hafa jákvæð áhrif á bið en líka horfur og afdrif sjúklinga.“ Til stendur að gjörbylta bráðamóttökunni í Fossvogi til að koma í veg fyrir þá örtröð og troðning sem hefur einkennt hana síðustu ár. Breskur bráðalyflæknir hefur verið ráðinn til að fylgja breytingunum eftir. Breskur bráðalyflæknir hefur verið ráðinn til að aðstoða við að innleiða þetta nýja kerfi, og Rafn bindur vonir við að breytingarnar skili áþreifanlegum árangri. „Fólk mun vonandi fyrst átta sig á því að það er ekki eins mikil örtröð á bráðamóttökunni, það verður auðveldara fyrir starfsfólk að sinna starfinu sínu og sjúklingar þurfa þá ekki að vera á ganginum, það verður kannski aðalmálið.“ Hægt er að hlusta á viðtalið í heild og umfjöllun Spegilsins í spilaranum hér að ofan.
Go to News Site