Lögreglan segir ekkert benda til tengsla við Hamas
Fréttastofa RÚV

Lögreglan segir ekkert benda til tengsla við Hamas

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að þeir sem handteknir voru vegna alvarlegrar líkamsárásar á þrjá menn í bílakjallara í Höfðatorgi í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin. Morgunblaðið sagði frá því í morgun að samkvæmt heimildum þess væri grunur um að hluti þeirra handteknu tengdust Hamas. „Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn,“ segir í tilkynningu lögreglu. Þar segir að rannsókn málsins sé í fullum gangi og í algjörum forgangi hjá lögreglu. Tveir sitja í gæsluvarðhaldi. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Sjö voru handteknir í upphafi og sátu fyrst fimm í gæsluvarðhaldi. Fjórum var sleppt úr haldi á föstudag, þá var áttundi maðurinn handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Einn þeirra sem handtekinn var í upphafi er enn í haldi. Lögregla hefur gefið upp að allir handteknu séu erlendir ríkisborgarar með lítil tengsl við landið. Einn hinna þriggja sem urðu fyrir árásinni er Íslendingur. Hann var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala eftir árásina en hefur verið útskrifaður þaðan. Hinir særðust minna.

Go to News Site