Fréttastofa RÚV
Dómari við Héraðsdóm Reykjaness féllst í gær á kröfu skiptastjóra þrotabús FX 21 um að rifta fjölda greiðslna fyrirtækisins til þriggja annarra verktakafyrirtækja. Einn og sami maður var stjórnarformaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi allra fyrirtækjanna og kona hans var skráð raunverulegur eigandi í fyrirtækjaskrá Skattsins. Tengd fyrirtæki fengu 43,5 milljónir FX 21 hét áður Viðskiptavitið og var umsvifamikið byggingarfyrirtæki. Það var tekið til gjaldþrotaskipta 7. nóvember 2024 að beiðni Skattsins. Milli þess að farið var fram á gjaldþrot og þar til úrskurður um það var kveðinn upp streymdi fé af sjóðum Viðskiptavitsins inn á reikninga hinna fyrirtækjanna. V 69 fékk 15,7 milljónir króna, Hús og jörð 11,5 milljónir og Vinnupallar 16,3 milljónir. Samtals eru það 43,5 milljónir. Skiptastjóri þrotabúsins gerði athugasemd við greiðslurnar en lögmaður fyrirtækjanna þriggja hafnaði endurgreiðslukröfu. Fór krafa skiptastjóra þá fyrir dóm. Lögmaður fyrirtækjanna þriggja sagði að Viðskiptavitið hefði skuldað þeim fé vegna leigusamninga. Hann neitaði því að fyrirtækið hefði verið ógjaldfært þegar hin fyrirtækin þrjú fengu greitt. Því til stuðnings sagði hann fyrirtækið hafa aflað sér hálfs milljarðs í tekjur frá því farið var fram á gjaldþrot þar til fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta. Vissi hvað til stóð þar sem krafan var birt á heimili hans Dómari við Héraðsdóm Reykjaness hafnaði því að greiðslurnar hefðu verið nauðsynlegar til að komast hjá tjóni. Hann sagði einnig að maðurinn sem stýrði öllum fjórum fyrirtækjunum hefði vitað eða mátt vita að komin væri fram krafa um gjaldþrotaskipti - enda var krafa um slíkt birt á lögheimili hans. Auk þess hefði fyrirtækið ekki staðið við greiðsluáætlun sem við skattinn ásamt því að lýsa því yfir að það væri eignalaust, gæti ekki staðið í skilum við lánardrottna og að það gæti staðið frammi fyrir greiðsluörðugleikum innan skamms tíma. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að greiðslurnar hefðu verið ótilhlýðilegar þar sem þær hafi verið fyrirtækjum framkvæmdastjórans og eiginkonu hans til hagsbóta á kostnað annarra kröfuhafa. Þessar greiðslur hafi leitt til þess að féð hefði ekki nýst í að greiða kröfur sem gerðar voru í búið. Fyrirtækin þrjú voru dæmd til að endurgreiða þrotabúinu greiðslurnar auk málskostnaðar.
Go to News Site