Allt bendir til þess að Frederiksen fái stjórnarmyndunarumboð
Fréttastofa RÚV

Allt bendir til þess að Frederiksen fái stjórnarmyndunarumboð

Allt bendir til þess að Mette Frederiksen leiðtogi jafnaðarmanna fái umboð til að mynda ríkisstjórn í Danmörku, þrátt fyrir sögulegt tap flokksins í þingkosningum í gær. Miklar sviptingar urðu í kosningunum og stjórnarflokkarnir töpuðu allir fylgi. Það eru 12 flokkar á þingi allt í allt og það flækir stöðuna. Hvorki rauða né bláa blokkin fékk meirihluta í kosningunum. Lars Løkke Rasmussen, formaður Miðjuflokksins, Moderaterna, er því í lykilstöðu þó að fylgi flokksins hafi minnkað lítillega. Jafnaðarmenn fengu sitt minnsta fylgi síðan 1903. Flokkurinn hlaut 21,9% atkvæða og 38 þingsæti og missir þar með 12 sæti á þingi. Annar flokkur sem hefur verið stór, Venstre, fær líka sögulega lítið fylgi. Flokkar eins og Sósíalíski þjóðarflokkurinn og Danski þjóðarflokkurinn vinna á. Hallgrímur Indriðason náði tali af Morten Messerschmitt, leiðtoga Danska þjóðarflokksins, í gærkvöld og hann var vígreifur. Hann sagðist gjarnan vilja vera í ríkisstjórn en væri ekki með nægt fylgi til þess. Líklega yrði hann í stjórnarandstöðu þar sem hann vildi hvorki gera Lars Løkke Rasmussen né Mette Frederiksen að ráðherrum. Leiðtogar flokkanna ganga nú einn af öðrum á fund Friðriks X Danakonungs. Þar greina þeir kóngi frá því hverjir þeir telja að leiða eigi ríkisstjórnarmyndun. Mette Frederiksen hefur þegar hitt hann og sagði í umræðuþætti með flokksleiðtogum í morgun hvaða ríkisstjórn hún teldi líklegasta. Hún sagði raunhæfasta kostinn vera myndun ríkisstjórnar sem samanstæði af rauðu blokkinni ásamt flokki Rasmussen, Moderaterne. Hvort það gangi eftir á svo eftir að koma í ljós en flestir gera ráð fyrir að ríkisstjórnarmyndin geti reynst erfið.

Go to News Site