Fréttastofa RÚV
Gæsluvarðhald yfir öðrum mannanna sem hefur verið í haldi lögreglu vegna rannsóknar á alvarlegri líkamsárás í bílakjallara við Borgartún í síðustu viku var framlengt í dag. Hann verður í haldi til 22. apríl hið minnsta, en lögregla krafðist framlengingar á grundvelli almannahagsmuna, segir í tilkynningu frá lögreglu. Annar maður er í haldi vegna málsins, en gæsluvarðhald yfir honum rennur út á föstudag. Rannsókn málsins er í fullum gangi og er í algjörum forgangi, segir í tilkynningunni. Hún sé mjög viðamikil og tímafrek eftir því.
Go to News Site