Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar
Fréttastofa RÚV

Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur fengið umboð til stjórnarmyndunarviðræðna. Hún hélt til fundar við Friðrik X konung í Amalíuborg klukkan 16 að íslenskum tíma. Þar upplýsti konungur hana um hvernig viðræður hans við flokksleiðtoga gengu í dag. Friðrik fór þess á leit við Frederiksen að hún myndi stýra viðræðum um myndun stjórnar Jafnaðarmannaflokksins með aðkomu Sósíalíska þjóðarflokksins og Róttæka vinstriflokksins. Fundaði með öllum flokksleiðtogum eftir hádegi Flokksleiðtogarnir gengu á fund konungs í halarófu í dag til þess að greina kóngi frá því hverjir þeir telja að eigi að leiða stjórnarmyndunarviðræður. Raðað var niður á fundina eftir úrslitum kosninganna. Þar sem Jafnaðarmannaflokkurinn hlaut flest atkvæði einstakra flokka var Frederiksen því fyrst til að hitta Friðrik, klukkan tólf á hádegi að íslenskum tíma. Flokksleiðtogarnir ræddu svo einn af öðrum við konung á tíu mínútna fresti. Það hefur verið nokkuð ráp á Frederiksen inn og út úr Amíluborg í dag. Hún hitti Friðrik í morgun, áður en flokksleiðtogar komu saman í sérstökum umræðuþætti. Það gerði hún til þess að biðjast lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína, eins og venja er. Hún heldur þó starfi sínu sem forsætisráðherra í starfsstjórn þar til búið er að mynda nýja ríkisstjórn. Fréttin er í vinnslu.

Go to News Site