Sá ekki fyrir sér að reka kjörbúð en hefur tekið við Jónsabúð á Grenivík
Fréttastofa RÚV

Sá ekki fyrir sér að reka kjörbúð en hefur tekið við Jónsabúð á Grenivík

Erica Patricia Rivera hlær þegar hún rifjar upp að hafa beðið fyrri eigendur að láta sig vita þegar rekstur Jónsabúðar á Grenivík yrði seldur. Hún hafi sagt þetta í algjöru gríni. En svo var haft samband við Ericu og nú er hún tekin við búðinni. Rætt var við Ericu og dóttur hennar, Karol Brynju, í útvarpsþættinum Víðsvegar á Rás 1. Í þættinum var flakkað um Grenivík og nokkur fyrirtæki og atvinnurekendur tekin tali. „Jæja, allt í lagi að prófa“ Erica segist í byrjun hafa verið hissa. Hana hafði vissulega lengi langað að reka eigið fyrirtæki en ekki séð fyrir sér að reka kjörbúð. Hún hugsaði síðan að það væri allt í lagi að prófa og bar tilboðið undir fjölskylduna. „Þið þurfið að hjálpa mér við þetta,“ sagði hún við þau. Fjölskyldan studdi öll við bakið á henni og hvatti hana áfram. Nú starfa báðar dætur hennar í búðinni og eiginmaðurinn aðstoðar þegar hann er í landi. Erica tók við rekstrinum 1. janúar og er ánægð með það þótt hún hafi verið stressuð í upphafi. „Þetta er rosalega gaman. Ég var ekki viðbúin að þetta væri svona gaman, svona skemmtilegt.“ Það kom þeim mægðum líka á óvart hversu mikið fyrirtæki á Grenivík panta í gegnum búðina. „Skólinn er að panta hjá okkur og eins skipið Frosti, þau panta mikið hjá okkur,“ segir Karol Brynja. Hægt er að hlusta á viðtalið úr Jónsabúð í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Þar má einnig hlusta á fleiri viðtöl um atvinnulífið á Grenivík. „Ég hugsaði: Jæja, allt í lagi að prófa“, segir Erica Patricia Rivera, nýr eigandi Jónsabúðar. Hún tók við rekstri þessarar rótgrónu verslunar í upphafi árs og fyrstu mánuðirnir hafa bæði verið stressandi og skemmtilegir.

Go to News Site