Fréttastofa RÚV
Frjó hugsun á sér engin landamæri og þegar skapandi listamenn frá ólíkum löndum koma saman, spretta fram nýjar hugmyndir. Verkefnið Arts Iceland á Ísafirði býður alþjóðlegu listafólki húsnæði og vinnuaðstöðu allt árið. Listamenn vinna að verkum sínum í nokkra mánuði og dvölinni lýkur oftast með sýningu. Elísabet Gunnarsdóttir, stofnandi Arts Iceland segir mestu máli skipta að skapa tengsl. „Hér hefur fólk tækifæri til að komast í kynni við lítið og öflugt samfélag. Það er auðvelt að nálgast fólkið hérna og það hefur náttúruna alveg ofan í sér“ Langflestir dvalargestir verða fyrir miklum áhrifum af umhverfi og mannlífi, og það sést í verkum þeirra. „Það eru ekki einungis myndlistarmenn sem sækja um, heldur rithöfundar, dansarar og sviðslistafólk. Þau hafa sömuleiðis áhrif á bæjarlífið hér“
Go to News Site